Hugleiðing um samfélagið okkar
Þjóðfélag er einmitt það sem nafnið segir, félag þjóðarinnar. Það erum við, þjóðin, sem eigum þetta félag, við fengum það í arf frá kynslóðunum á undan okkur. Stofnendurnir stóðu á Þingvöllum árið 930. Þó að við höfum fæðst inn í þetta félag og eigum ekki margra kosta völ um aðildina, þá eigum við margar leiðir til að láta til okkar taka og hafa áhrif. Við getum til dæmis hugað að minnstu deildunum í félaginu, fjölskyldunum okkar og látið margt gott af okkur leiða.

Heimasíða