Guð og mennEf manni verður það á að fletta upp á boðorðunum tíu á Google sést þetta meðal margs annars (innsláttarvillur lagaðar): "Sjöunda boðorð Þú skalt ekki stela.Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við tökum ekki peninga eða fjármuni náunga okkar né drögum okkur það með svikinni vöru eða öðrum brögðum, heldur hjálpum þeim að varðveita eigur sínar og efla atvinnu sína." Íslendingar eru einstök þjóð. Það eigum við þó sameiginlegt með öllum öðrum þjóðum. Engin þjóð er eftirmynd annarrar þjóðar. Það er ekki þar með sagt að við séum engum lík, sem köllum okkur íslendinga. Við eigum margt sameiginlegt með nágrannaþjóðum okkar. Í dag tel ég fram eitt af boðorðunum tíu. Þau eru svo samgróin lífsviðhorfum okkar, að langir lagabálkar eru settir til að tryggja, að þeim sé framfylgt. Þjóðkirkjur hafa sama markmið. Í boðorðunum birtist gott siðferði, og um þau er víðtækt samkomulag. Þeirra sem misstíga sig á refilstigum veraldarvafstursins bíða aðeins tveir kostir: Fyrirgefning eða glötun. Í sjónauka alþjóðasamfélagsins blasir siðferðisbrot okkar íslendinga við. Það þarf reyndar ekki mikla stækkun til. Við brutum sjöunda boðorðið. Við tókum peninga og fjármuni náunga okkar með brögðum og gegn svikinni vöru. Við þóttumst hafa fylgt settum reglum og sett upp tryggingasjóð, en hann reyndist einskis virði og sýndarmennskan ein. Við eigum þá tveggja kosta völ: Fyrirgefningu eða glötun. Ég vil leita fyrirgefningar af auðmýkt, og satt að segja lofa bót og betrun. Ég vil leiðrétta misgjörðir okkar og borga skuldir. Ég heyri og sé hvern stjórnmálamanninn á fætur öðrum stíga fram og boða leið glötunarinnar. Borgum ekki skuldir. Borgum ekki skatta. Þetta er þeirra boðskapur. Dönsum í kringum gullkálfinn. Hrunadans glötunarinnar. Höfum þá að háði og spotti sem vinna dag og nótt að leið fyrirgefningarinnar. |
| Heimasíða |